Kaffi með fiskikollageni, skartgripir úr hafinu, niðursoðinn þorskur og hreinsun hafsins voru meðal lokaverkefna nemenda á fyrsta námskeiði Sjávarakademíunnar sem lauk nýverið í Húsi sjávarklasans. Á námskeiðinu fór fram frumkvöðlaþjálfun og farið yfir stofnun fyrirtækja og vöruþróun. Þá voru nemendur kynntir fyrir ýmsum frumkvöðlum og starfsemi þeirra og heimsóttu nemendur fyrirtæki, sem tengjast bláa hagkerfinu, á Suðurnesjum. Þá fólst lokaverkefni nemendanna í því að kynna viðskiptahugmynd fyrir dómnefnd akademíunnar.

Fullt nám Sjávarakademíunnar hefst í september og er þá um að ræða þriggja mánaða nám sem byggir á grunni námsbrautar Fisktækniskóla Íslands um hráefnisvinnslu, en þar að auki verður lögð mikil áhersla á vöruþróun, frumkvöðlaþjálfun, stofnun og rekstur fyrirtækja.

Það sem er einstakt við nám Sjávarakademíunnar er ekki síst að nemendur stunda námið að mestu í Húsi sjávarklasans þar sem nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi er allt um lykjandi. Námið er einnig hugsað á þann veg að kynna fyrir nemendum öll helstu tækifæri sem eru í bláa hagkerfinu hvort sem það er heilsu- og snyrtiefni úr hafinu, fiskeldi, þörungar, sjávarútvegur og tæknibúnaðar svo eitthvað sé nefnt.

Lögð verður áhersla á kynningu á vörum og nýjum fyrirtækjum á hinum ýmsu sviðum sjávarútvegs og fiskeldis, allt frá vinnslu til vöruþróunar, markaðssetningu og sölu.

Nánari upplýsingar veitir Sara Björk Guðmundsdóttir í síma 777-0148 eða sarabjork@sjavarklasinn.is 

109840748_209390637054472_7079923798043540248_n

110203878_330353678133351_79218354759146483_n

IMG_6597