Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra veitti viðurkenningar Íslenska Sjávarklasans til fjögurra aðila, sem hafa stuðlað að eflingu nýsköpunar og samstarfs, opnað fleiri möguleika fyrir nýsköpunarfyrirtæki eða styrkt samkeppnisstöðu þeirra á innlendum og alþjóðlegum vettvangi.

Viðurkenningarnar hlutu:

Ólöf  Tryggvadóttir frumkvöðull, fyrir að nýta fjölbreytt íslensk hráefni í vörur sínar hjá frumkvöðlafyrirtækinu Eylíf.  Þannig hefur Ólöf búið til tækifæri fyrir ýmsa aðra framleiðendur á einstökum hráefnum úr náttúruauðlindum Íslands. Þá hefur Ólöf  verið afar áhugasöm um að deila reynslu sinni og þekkingu til annarra frumkvöðla í klasanum og þannig hefur hún verið góð fyrirmynd um samstarf og samvinnu í Sjávarklasanum.

Kristján Þórarinsson stofnvistfræðingur hefur áratuga reynslu á sviði sjávarútvegs og á alþjóðavettvangi fiskimála. Þegar Kristján flutti skrifstofu sína í Hús sjávarklasans urðu frumkvöðlar í klasanum þess fljótt varir að með honum kom mikið tengslanet og víðtæk þekking. Kristján hlaut viðurkenningu klasans fyrir að hafa liðsinnt frumkvöðlum í klasanum við að koma hugmyndum í framkvæmd. Tengsl rótgróinna sjávarútvegsfyrirtækja og frumkvöðla hafa eflst enn frekar með tilkomu Kristjáns í Hús sjávarklasans.

Danska markaðs- og almannatengslafyrirtækið Coplus hlaut viðurkenningu Sjávarklasans fyrir að reynast afar traustur bakhjarl frumkvöðla. Bryndís Thelma Jónasdóttir tók við viðurkenningunni fyrir þeirra hönd. Coplus hefur boðið frumkvöðlum í Sjávarklasanum aðstoð án endurgjalds við að koma sér betur á framfæri á innlendum og erlendum mörkuðum. Þetta hefur reynst frumkvöðlum ómetanlegt. Coplus hefur aðstoðað mörg af  öflugustu framleiðslufyrirtækjum landsins í markaðssetningu og ímyndarvinnu á alþjóðlegum mörkuðum en hefur um leið sýnt frumkvöðlum einstakan áhuga og liðsinnt þeim við að feta sín fyrstu skref á alþjóðamarkað.

Ólafur Jón Arnbjörnsson skólastjóri Fisktækniskólans hlaut viðurkenningu klasans fyrir ómetanlegt starf í uppbyggingu náms í fiskeldi og eflingu tengsla klasans við Fisktækniskólann. Allt frá því Ólafur Jón hóf starfsemi Fisktækniskólans hefur hann verið ótrauður við að kynna ungu fólki tækifærin í sjávarútvegi og eflt áhuga og þekkingu á því sviði, ekki síst í fiskeldi. Samstarf klasans og Fisktækniskólans hefur verið einstakt og haft mikla þýðingu fyrir uppbyggingarstarf Íslenska sjávarklasans.