Yfir 50 frumkvöðlar!⚓🐟🌊 Veitingar í boði & aðgangur ókeypis!

Fimmtudaginn 19. maí mun Sjávarklasinn kynna nokkur þeirra fjölmörgu fyrirtækja sem hafa komið fram með nýjungar sem stuðla að hreinna umhverfi hafsins eða betri nýtingu auðlinda þess. Sýningin, sem haldin er í Húsi sjávarklasans að Grandagarði 16 og stendur frá kl 14-18 og er hluti af Nýsköpunarvikunni. Gestir fá tækifæri til að kynna sér starfsemi fjölmargra nýsköpunarfyrirtækja og fylgjast þannig með því sem er nýjast að gerast á þessu sviði hérlendis.

Upplifðu bláa nýsköpun með okkur!

Hægt er skrá sig á Facebook-síðu viðburðarins!
https://www.facebook.com/events/694442991815307/?ref=newsfeed