WasabiWasabi Iceland, frumkvöðlafyrirtæki úr Húsi sjávarklasans, hefur gengið frá samningi við Orkusöluna um kaup á grænni orku fyrir gróðurhús sín. Orkan er upprunavottuð raforka frá vatnsaflsvirkjunum á Íslandi og mun knýja alla lýsingu í gróðurhúsum Wasabi Iceland. Fyrirtækið mun því bjóða hreina vöru framleidda úr umhverfisvænum orkugjöfum.

Fyrsta varan frá Wasabi Iceland, hágæða wasabi, er væntanleg á markað vorið 2017.