Beach Clean up-dayStarfsfólk Sjávarklasans tók þátt í hreinsunardegi Bláa hersins í samvinnu við bandaríska sendiráðið á Íslandi 31. ágúst sl.
Að þessu sinni var Selvogsfjara hreinsuð og voru tveim gámar stútfylltir. Fróðlegt er að sjá hvað leynist í fjörunni. Þarna voru stígvél, plastbrúsar af ýmsum stærðum og gerðum, netadræsur, netakúlur, olíutunnur og færibönd úr fiskvinnslu.