Námið byggir á grunni námsbrautar Fisktækniskóla Íslands um hráefnisvinnslu, en þar að auki verður lögð mikil áhersla á vöruþróun, frumkvöðlaþjálfun, stofnun og rekstur fyrirtækja. Námið höfðar til fólks með reynslu af vinnumarkaði, sem hefur áhuga á nýsköpun og stefnir á vinnu eða rekstur eigin fyrirtækis innan bláa hagkerfisins. Lögð verður áhersla á kynningu á vörum og nýjum fyrirtækjum á hinum ýmsu sviðum sjávarútvegs og fiskeldis, allt frá vinnslu til vöruþróunar, markaðssetningu og sölu.

Áfangarnir sem eru kenndir eru:

  • Bláa hagkerfið
  • Umhverfismál
  • Hráefni & vinnsla
  • Gæðastjórnun & áætlanagerð
  • Afurðaframleiðsla & vöruþróun
  • Framkoma & þjónustuhönnun
  • Stafrænar lausnir
  • Sala&markaðsmál
  • Fjármögnun & rekstur
  • Verkefnastýring
  • Nýsköpun & lokaverkefni
  • Heimsóknir í nýsköpunarfyrirtæki

Haustönn hefst 14.september og er umsóknarfrestur til 7.sept.

Námsgjöld eru 18.000kr per önn

Skráning fer fram hér fyrir neðan.

Nánari upplýsingar gefur Sara Björk Guðmundsdóttir í síma 777-0148 eða sarabjork@sjavarklasinn.is

Form 1
Námsferill
Atvinna
Nám