Nýverið hóf fyrirtækið Sjávarafl starfsemi sína í Húsi Sjávarklasans. Sjávarafl er markaðshús í sjávarútvegi sem sérhæfir sig í útgáfu og markaðsráðgjöf innan sjávarútvegsins. Hluti af þeirra þjónustu er heimasíðugerð, fréttatilkynningar, hönnun, útlit, auglýsingagerð, kynningarefni, útgáfa, umsjón samfélagsmiðla og fleira.

“ Okkur fannst mikil vöntun á þessu fyrirtæki innan sjávarútvegsins en í gegnum árin þegar við stýrðum Útvegsblaðinu var mikið leitað til okkar af fólki í sjávarútvegi sem vantaði aðstoð með hina ýmsu hluti sem snúa að textagerð, heimasíðugerð, útlisthönnun, auglýsingagerð og fleira. Þannig við ákváðum að svara eftirspurninni, þar sem við vinnum innan sjávarútvegsins og teljum okkar þekkja hann vel “, segir Hildur Sif Kristborgardóttir, framkvæmdarstjóri Sjávarafls.

Starfsfólk Sjávarafls er með mikla reynslu af útgáfu og stýrði meðal annars útgáfu Útvegsblaðsins um árabil ásamt því að starfa náið með sjávarklasanum að ýmsum verkefnum undanfarin tvö ár. Fyrirtækið mun í haust gefa út samnefnt blað sem mun síðan koma út sex sinnum á ári.

Eigendur Sjávarafls eru þær Sædís Eva Birgisdóttir og Hildur Sif Kristborgardóttir sem er einnig formaður Félags kvenna í sjávarútvegi.