Arctica Finance og Íslenski sjávarklasinn hafa ákveðið að hefja samstarf sem lýtur að því að greina og þróa tækifæri í sjávarútvegi. Samstarfið snýr meðal annars að fjármögnun verkefna innanlands og erlendis á sviði útgerðar, fullvinnslu og líftækni.

Húni Jóhannesson hefur verið ráðinn í teymi fyrirtækjaráðgjafar Arctica Finance með áherslu á sjávarútveg, en hann sinnir sameiginlegum verkefnum Arctica Finance og Sjávarklasans. Húni starfaði áður hjá Analytica, þar sem hann sinnti greiningum og ráðgjöf á sviði fjármála og efnahagsmála. Auk þess hefur hann sinnt stundakennslu við Háskólann á Bifröst. Húni er með BSc í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst og MSc í bæði fjármálahagfræði og fjármálum fyrirtækja frá HÍ. Ásamt því hefur hann lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

Klasasamstarfið býður upp á samþættar hugmyndir og víðfeðmt tengslanet, sem m.a. telur systurklasa Íslenska sjávarklasans í Maine- og Massachusettsfylkjum í Bandaríkjunum. Þá er stefnt að opnun sambærilegra sjávarklasa í Evrópu og fleiri stöðum í Bandaríkjunum. Arctica Finance er verðbréfafyrirtæki sem einkum veitir fagfjárfestum og öðrum fjársterkum aðilum þjónustu í gegnum þrjú svið, Eignastýringu, Fyrirtækjaráðgjöf og Markaðsviðskipti. Sérfræðingar Arctica Finance hafa komið að mörgum stærstu ráðgjafarverkefnum síðastliðinna ára.

Sjávarklasinn og Arctica Finance telja að með því að samnýta þá þekkingu og þau tengsl sem þessir aðilar búa yfir sé hægt að skapa fjölmörg spennandi tækifæri til vaxtar fyrir íslenskan sjávarútveg.