Þann 30. nóvember nk. frá 12:00 – 16:00 halda Samtök atvinnulífsins og Íslenski sjávarklasinn ráðstefnu í Kaldalóni í Hörpu undir yfirskriftinni ,,Flutningalandið Ísland“. 

Flutningalandið Ísland er vettvangur þar sem saman koma aðilar úr öllum helstu greinum samgangna og flutninga hérlendis. Markmiðið með Flutningalandinu er að auka skilning á mikilvægi flutningakerfisins fyrir samkeppnishæfni þjóðarinnar og efla samstarf á milli aðila í greininni.

Á ráðstefnunni verður rætt um hvernig Ísland getur eflt sig sem tengipunkt fyrir alþjóðaflutninga og um leið stuðlað að auknu efnahagssamstarfi þjóða við Norður Atlantshaf.

Aðalfyrirlesari er Violeta Bulc framkvæmdastjóri samgöngumála hjá Evrópusambandinu en auk hennar taka til máls Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri SA, Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri SFS,  Gísli Gíslason hafnarstjóri Faxaflóahafna, Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskip, Marco Bluemen framkvæmdarstjóri Seabury Consulting og Paul Eden aðstoðarforstjóri Ricondo & Associates, INC.

Ráðstefnustjóri verður Stella Björg Kristinsdóttir, markaðsstjóri Marel.

Skráning fer fram á heimsíðu Samtaka atvinnulífsins og má sjá dagskrána hér að neðan.

 

NM84642-Flutningalandið-Ísland-netpóstur