_WED4317Þann 4. febrúar síðastliðinn var matarfrumkvöðlum boðið í Drekkutíma* í Húsi sjávarklasans með það að markmiði að tengja þennan áhugaverða og stóra hóp betur saman og kynna nokkur verkefni sem hugsanlega gætu nýst þessum hópi.

Deloitte kom og kynnti Fast 50 sem er eins konar uppskeruhátíð íslenska tæknigeirans. Með verkefninu er tæknifyrirtækjum skapaður vettvangur þar sem vekja má athygli fjárfesta, fjármögnunaraðila og annarra hagsmunaaðila sem og að vekja athygli á vaxtarmöguleikum sínum.

Íslandsbanki kynnti Frumkvöðlasjóð Íslandsbanka sem styrkir frumkvöðlaverkefni sem leggja áherslu á endurnýjanlega orku og sjálfbæran sjávarútveg.

Icelandic Startups (áður Klak-Innovit) kynnti Gulleggið og önnur verkefni. Gulleggið er frumkvöðlakeppni þar sem fumkvöðlum gefst tækifæri til að koma hugmyndum sínum á framfæri og gera raunáætlanir um stofnun fyrirtækja.

Loks kynnti Íslenski sjávarklasinn sína starfsemi og þá þjónustu sem fyrirtækið býður upp á fyrir frumkvöðla. Allt frá opnun Húss sjávarklasans hefur frumkvöðlum gefist kostur á að leigja aðstöðu í frumkvöðlasetrum hússins, þau eru nú tvö með aðstöðu fyrir hátt í 20 frumkvöðla. Aðstöðu í frumkvöðlasetrum fylgir félagsskapur annarra frumkvöðla, aðgengi að öflugum fyrirtækjum í húsinu og netverki Íslenska sjávarklasans.

Það er mikilvægt fyrir frumkvöðla að til sé vettvangur fyrir þá að hittast og fá tækifæri til að miðla reynslu sinni og læra af öðrum, auk þess að styrkja og víkka tengslanet sitt. Áætlað er að endurtaka viðburðinn í haust.

Á fésbókarsíðu okkar er hægt að skoða myndir frá Drekkutímanum.

* Drekkutími er íslenska orðið yfir Happy hour