Út er komið ritið Sjávarklasinn á Íslandi: Efnahagsleg umsvif og afkoma 2014. Þetta er fimmta árið í röð sem Íslenski sjávarklasinn tekur saman helstu tölur og staðreyndir um þróun sjávarútvegsins og helstu hliðargreina hans.

Meðal þess sem fram kemur í ritinu:

  • Heildarvelta tæknifyrirtækja í sjávarklasanum á Íslandi jókst um 11% að raunvirði á árinu 2014. Þetta er fjórða árið í röð sem Íslenski sjávarklasinn gerir mælingar á veltu þessara fyrirtækja og öll árin fjögur hefur veltan frá fyrra ári aukist um 10-15% að raunvirði.
  • Fjárfest hefur verið í 12 nýjum öflugum fiskiskipum fyrir um 35 milljarða króna á síðustu misserum. Skipin eru væntanleg til landsins á næstu þremur árum. Gera má ráð fyrir að fleiri skip verði pöntuð á næstu árum.
  • Samþjöppun fiskvinnslunnar hélt áfram á árinu 2014. Bolfiskvinnslan safnast fyrir á sunnanverðum Faxaflóa og við Reykjanes. Um helmingur botnfiskaflans sem á annað borð kemur til vinnslu í landi er nú unninn í minna en einnar klukkustunda aksturfjarlægð frá Keflavíkurflugvelli og Sundahöfn.
  • Mikil fjárfestingabylgja stendur yfir í fiskeldi hér á landi. Gangi áætlanir eftir mun framleiðslan aukast mikið á næstu árum og áratugum en langur og hlykkjóttur vegur er framundan við að byggja upp fiskeldi í sjókvíum á Íslandi. Erlend fjárfesting leitar í greinina í meira mæli en áður.
  • Tímabilið frá 2009-2014 hefur verið afskaplega hagstætt mörgum sjávarútvegsfyrirtækjum. Nokkur samdráttur var í aflamagni og útflutningsverðmætum á árinu 2014 frá fyrra ári, einkum vegna dræmrar loðnuvertíðar. Árið 2015 hefur einkennst af talsverðum ytri áföllum, svo sem uppnámi í sölu afurða til Rússlands, Úkraínu og Nígeríu. Olíverð er þó lágt um þessar mundir og flest afurðaverð góð.
  • Útflutningur á ferskum flökum og bitum hefur vaxið mikið frá Íslandi frá árinu 2008. Ferskar þorskafurðir eru þar fyrirferðamestar en hlutur þeirra í útflutningstekjum þorskafurða jókst úr 10% í 30% milli áranna 2007 og 2014.
  • Áframhaldandi gróska er í líftækni og nýsköpun í sjávarklasanum á Íslandi og endurspeglast það í fjölda nýstofnaðra fyrirtækja á þessu sviði, nýjum vörum og fjárfestingaráformum. Alls 10-12 fyrirtæki á þessu sviði eru í virkri starfsemi og hleypur verðmæti þeirra á milljörðum íslenskra króna.

Lesa má skýrsluna rafrænt á Issuu hér og hlaða henni niður á PDF formi hér.