matarklasinn_logo_draft

Í hádeginu í dag kom saman fjölbreyttur hópur fólks úr matvælageiranum og ræddi hugmyndir um stofnun klasa um nýsköpun og vöxt í matvælageiranum á Íslandi. Hópurinn spannaði vítt svið, þannig komu fulltrúar frá fyrirtækjum sem eiga meira en 100 ára sögu, yfir í nýstofnuð og framsækin matvælafyrirtæki á fyrstu stigum framleiðslu og allt þar á milli. Matarklasinn er fyrst og fremst hugsaður sem vettvangur til að keyra áfram ný verkefni tengd nýsköpun, vöruþróun og vöruhönnun og stofna ný fyrirtæki með samvinnu.

matarklasahopurinnÁ fundinum var stofnun samstarfsvettvangs rædd með það að markmiði að stuðla að framþróun og nýsköpun hjá þeim fyrirtækjum sem koma að matargeiranum á Íslandi. Til stendur að tengja saman þekkingu, reynslu, fjármagn og nýsköpun og leiða saman fólk með ólíkan bakrunn, meðal annars með það að markmiði að skapa íslenskum matvælum meira rými á erlendum mörkuðum. Þá á að efla markaðssetningarstarf íslenskra framleiðenda og tengja matvælageirann frekar við ýmsar skapandi greinar og hönnun. Mun það starf nýtast jafnt innanlands sem og utan, en áformað er að huga sérstaklega á möguleika til vaxtar og útflutnings.

Óhætt er að segja að góð stemning hafi myndast á fundinum þar sem svo breið flóra fólks með ríkan áhuga á mat og matarmenningu kom saman og ræddi fjölbreytt tækifæri framtíðar í þessari skemmtilegu atvinnugrein.

Þórdís Jóna Sigurðardóttir hefur stýrt hugmyndavinnu við stofnsetningu Matarklasans í samstarfi við Íslenska sjávarklasann.

matarklasinn_sjalfbaer_islensk_matvaeli