Næstkomandi föstudag, þann 15. mars kl. 15, munu íslensk tæknifyrirtæki í sjávarútvegi kynna samstarfsverkefnið „Green Marine Technology“. Sjósetning verkefnisins fer fram í Húsi sjávarklasans að Grandagarði 16. Verkefnið er hluti af Hönnunarmars 2013 en þetta er með fyrstu verkefnum sem íslenskur sjávarútvegur eða tengdar greinar kynna á hátíðinni. Af þessu tilefni mun forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, flytja ávarp.

Verkefnið er afrakstur samstarfs tæknifyrirtækja innan Íslenska sjávarklasans en að því standa 3X Technology, Dis, Marport, Naust Marine, Navis, Pólar togbúnaður, Prómens, Samey, ThorIce og Trefjar.

Öll fyrirtækin sem standa að þessu verkefni bjóða lausnir á alþjóðamarkaði sem eru framúrskarandi í grænni tækni og stuðla að bættu umhverfi. Tæknilausnir fyrirtækjanna byggja á betri nýtingu orkugjafa, minni olíunotkun búnaðar, betri nýtingu í vinnslu hráefna, o.s.frv.

Með þessu nýja verkefni er ætlunin að efla samstarf tæknifyrirtækja um að kynna framúrskarandi íslenska tækni fyrir alþjóðlegan sjávarútveg og vinnslu. Um leið er með verkefninu vakin athygli á forystu íslensks sjávarútvegs í gæðum í veiðum og vinnslu.