Íslenski sjávarklasinn heldur fund í Boston hinn 7. mars næstkomandi um tækifæri í fullnýtingu á skel. Fundurinn er haldinn í tengslum við stærstu sjávarútvegssýningu Bandaríkjanna sem stendur yfir dagana 6.-8. mars. Að fundinum standa einnig New England Ocean Cluster, Alaska Fisheries Development Foundation og Gloucesterborg í Massachusettsfylki. „Á þessu svæði er mikil humarveiði en skelinni, sem hægt er að búa mikil verðmæti úr, er oft hent“ segir Þór Sigfússon framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans. „Systurklasi okkar í Maine mun m.a. reyna að stuðla að auknu samstarfi í fullvinnslu humarskelja og fundurinn er hugsaður í því skyni.“  

Þeir sem hafa áhuga á að koma á fundinn geta haft samband við Eyrúnu Huld eyrun@sjavarklasinn.is.