flutningalandid-island-22-september-

Hvernig byggjum við upp samgönguinnviði framtíðar? Hvert verður samspil borga, hafna, flugvalla og atvinnulífs í framtíðinni? Er flutningakerfið tilbúið í útflutningsiðnað framtíðarinnar? Þessum og fleiri spurningum verður leitast við að svara á ráðstefnunni Flutningalandið Ísland sem haldin verður í Hörpu miðvikudaginn 30. september næstkomandi, en skráning hófst í dag á sjavarklasinn.is. Ráðstefnan er ætluð öllum þeim sem starfa í flutningum og samgöngum og fyrirtækjum sem reiða sig á skilvirka flutninga.

Flutningalandið Ísland

Dagur: 30. september kl. 8:30 til 15:30
Staðsetning: Kaldalón í Hörpu
Miðaverð: 20.900 kr. / 17.900 ef keyptur er fleiri en einn miði
Skráning og dagskrá hér 

Aerotropolis

Aerotropolis

Á Flutningalandinu Ísland verða tíu íslenskir fyrirlesarar og þrír erlendir, þ.á m. John D. Kasarda, höfundur bókarinnar Aerotropolis: The Way We’ll Live Next, sem mun fjalla um hvernig samspil borga, flugvalla og viðskipta verður sífellt meira og mikilvægara og hvað það þýðir fyrir Ísland. Að auki verða erindi sem snerta innviði flutninga, útflutning og alþjóðlegar tengingar Íslands. Fyrirlesarar koma meðal annars frá höfninni í Rotterdam, Eimskip, Icelandair Cargo, Samherja, Norðursalti, Brim og Íslenska sjávarklasanum en Ólöf Nordal innanríkisráðherra mun opna ráðstefnuna. 

Íslenski sjávarklasinn stendur fyrir ráðstefnunni í samstarfi við hóp flutningafyrirtækja sem starfa saman innan klasans, Samtök verslunar og þjónustu og Samtök atvinnulífsins. Þetta er annað árið í röð sem viðburðurinn er haldinn.

„Þessi hópur fyrirtækja setti saman fyrstu eiginlegu langtímastefnuna um flutninga sem atvinnugrein á árinu 2013 og þessi ráðstefna er mikilvægur líður í að auka umræðu um flutninga og samgöngur. Góðar samgöngur og utanríkisviðskipti hafa alltaf verið forsendur góðra lífskjara hér á landi og það gildir alls ekki síður um ókomna framtíð.“ segir Haukur Már Gestsson hjá Íslenska sjávarklasanum og bendir á að fólk alls staðar að úr atvinnulífinu hafi sótt ráðstefnuna á síðasta ári.

Sjávarútvegur, útflutningar, innviðir og innblástur
Erla Ósk Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Codland var ráðstefnustjóri

Frá ráðstefnunni 2014

Dagskrá ráðstefnunnar er skipt niður eftir fjórum málefnum. Fyrst verður samspil flutninga og sjávarútvegs í deiglunni þar sem Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, Unnar Jónsson, flutningastjóri Samherja og Bjarki Vigfússon, hagfræðingur Íslenska sjávarklasans, benda á áskoranir, tækifæri og áhugaverða framtíðarþróun í flutningum á sjávarafurðum.

Þá taka við þrír erlendir fyrirlesarar og fjalla um reynslu af flutningum og skipulagningu þeirra erlendis. Fyrstur þeirra er John D. Kasarda, höfundur bókarinnar Aerotropolis: The Way We’ll Live Next, ráðgjafi og prófessor við Kenan-Flagler Business School, en hann fjallar um hvernig samspil borga, flugvalla og viðskipta verður sífellt mikilvægara og hvað það þýðir fyrir flutningalandið Ísland. Þá tekur við Patrick Arnold, framkvæmdastjóri flutningafélagsins Soli DG og einn forsvarsmanna fyrirhugaðs sjávarklasa í Portland í Maine fylki í Bandaríkjunum. Hann mun fjalla um tækifærin í bættum tengingum milli Íslands og austurstrandar Bandaríkjanna. Þar á eftir tekur við Sofie Tolk, framkvæmdastjóri matvælaflutninga hjá Rotterdamhöfn, en hún mun meðal annars fjalla um mikilvægi góðrar skipulagningar og samgöngustefnu til lengri tíma en þekkist hérlendis og reynsluna af því í Hollandi.

Þriðja viðfangsefni ráðstefnunnar snýr að innviðum og uppbyggingu þeirra til framtíðar. Þar mun Gunnar Már Sigurfinnsson forstjóri Icelandair Cargo, fjalla um kosti í flugvallarmálum, Gísli Hauksson, forstjóri Gamma, fjalla um einkaframkvæmdir í samgöngum og Sara Pálsdóttir hjá Eimskip ræða framtíðarsýn í skipaflutningum.

Að lokum verða útflutningur og alþjóðlegar tengingar skoðuð þar sem Haukur Óskarsson, varaformaður stjórnar Nuukhafnar, stígur á svið og ræðir tækifæri í flutningum til og frá Grænlandi. Þar á eftir ræðir Garðar Stefánsson, stofnandi Norðursalts reynsluna af því að reka lítið og vaxandi útflutningsfyrirtæki í íslensku flutningaumhverfi og Kristján Ólafsson frá KPMG tekur fyrir áskoranir og tækifæri í innviðum og regluverki fyrir smáiðnaði í útflutningi.

Miðaverð á Flutningalandið Ísland er 20.900 kr. en 17.900 kr. ef keyptir eru fleiri en einn miði. Innifalið í miðaverðinu er hádegisverður og kaffiveitingar. Takmarkaður fjöldi miða er í boði og áhugasamir því hvattir til að skrá sig sem fyrst hér. Vinsamlegast athugið að dagskrá er birt með fyrirvara um smávægilegar breytingar.

Frekari upplýsingar veitir Haukur Már hjá Íslenska sjávarklasanum í síma 577 6200.

[gdlr_button href=“https://sjavarklasinn.is/flutningar2015″ target=“_top“ size=“medium“ background=“#7e7e7e“ color=“#ffffff“ with_border=“yes“ border_color=“#bbbbbb“]Skráning[/gdlr_button]

Flutningalandið-Dagskrá