Ný greining Sjávarklasans sem gefinn var út í dag um afkomu tæknifyrirtækja sem tengjast sjávarútvegi, leiðir í ljós að meðaltalsvöxtur tæknifyrirtækja árið 2016 var um 5-10% sem er ívið minni en árin á undan.

Helstu niðurstöður greiningarinnar sem lesa má í heild sinni hér eru að:

Stór tæknifyrirtæki með heildarlausnir eflast en minni fyrirtækin standa í stað

Fjárfestingar íslensk sjávarútvegs í skipum og búnaði hafa haft jákvæð áhrif á tæknifyrirtækin

Samvinna fyrirtækja eykst en tækifæri eru til frekari samruna og samvinnu

Blikur er á lofti í rekstri fyrirtækjanna vegna sterkrar stöðu krónunnar